Jæja þá er ég loksins komin í íbúðina mína og komin með netið:) ég fékk íbúðina einum degi fyrr eða á miðvikudaginn og flutti þá strax dótið mitt frá Sigrúnu og fékk lánaða dýnu hjá Katrínu og gisti fyrstu nóttina:) svo á fimmtudaginn kom rúmið mitt og hjólið og félaginn sem sendi það hingað á Eggertsgötuna skildi það bara eftir niðri á neðstu hæðinni svo ég sá frammá að þurfa að drösla þessu ein upp þar sem allir voru í skólanum eða vinnunni en svo var ég svo heppin að rekast á þrjá sterka fyrrverandi MA félaga sem hjálpuðu mér með þetta upp sem betur fer ...held þetta hefði orðið frekar skrautlegt ef ég hefði borið þetta allt ein hehe.
Fékk meirasegja eina innflutningsgjöf í gær naktir myndar menn í ramma...takk Einar:)
Svo komu mamma og pabbi á föstudaginn með restina af dótinu mínu svo ég er farin að raða í fataskápinn og gera fínt, vantar samt Kósku til að skipuleggja þetta með mér en held að ég ætti að geta komið öllum fötunum fyrir þótt það eigi reyndar eftir að koma í ljós:) Þannig ég er bara mjög ánægð með þetta og hlakka bara til þegar allt dótið verður komið og ég get farið að koma mér almennilega fyrir og þá held ég ostapartý ;)
En ég á nú líka eftir að sakna þess að vera ekki hjá Sigrúnu minni takk æðislega fyrir mig elskan:* við verðum duglegar að skokka yfir Þingholtin og koma í heimsókn:)
Annars er skólinn náttlega byrjaður og allt á fullu þar. Mér líst mjög vel á þetta allt saman nema kannski tölfræðina en ég reyni að vera bjartsýn á að það reddist. Við erum eitthvað um 200 í bekknum svo þetta er aðeins annað en maður hefur vanist og flestir tímarnir eru í fyrirlestrar formi. Það er strax hellingur að lesa en mér finnst þetta mjög áhugavert svo ég hef ekkert að kvarta:) svo var nýnemadjammið á föstudaginn og þá var heldur betur tekið á því! Byrjuðum klukkan fjögur og fórum í leiki og drukkið bjór og meiri bjór! Fórum svo í eitthvað hús og drukkum meiri bjór og hvítvín og kynntist betur fólkinu þannig það var geggjað gaman. Kíktum svo aðeins heim og ég fékk aðeins að kynnast nágranna mínum sem úff já er svona semí hress! Fórum svo í glerhúsið hjá hí þar sem var fínt tjútt og aðeins í bæinn þannig þetta var topp kvöld og lofar góðu ;)
Vaknaði svo snemma í gær til að fara í ikea með gömlu og ég var svona ágætlega hress bara...ekkert meira um það hér hehe en ég náði að versla mér alveg slatta í íbúðina og er búin að setja eitthvað saman og er að fara raða og gera fínt hér á milli þess sem ég les í öllum þessum bókum sem ég á eftir að gera fyrir morgundaginn :/
Katrín og Sunna eru svo að koma um næstu helgi svo það er eins gott að ég verði dugleg að læra í næstu viku til að geta slett aðeins úr klaufunum með þeim:) Ætla að reyna vera dugleg að blogga hér og leyfa ykkur að fylgjast með lífinu í Eggertsgötunni. Og enda þetta á að óska Rannveigu og Vilberg til hamingju með litlu prinsessuna sem fæddist á föstudaginn. Ég kem beint í heimsókn þegar ég kem næst til Akureyrar:)
Rakel
09. september 2007 klukkan 20:49
Rakel Edda Bjarnadóttir 12 athugasemdir
allt að gerast hér á þessari síðu..... held að þetta blogg fari bara í smá pásu núna og kannski byrja ég að nota það aftur þegar ég er búin að koma mér fyrir á Eggertsgötunni og búin að fá netið í nýju fartölvuna mína ;) síðasti vinnudagurinn í Sportver á morgun og vá hvað ég á eftir að sakna þess að vera þarna! flyt semsagt suður á föstudaginn þannig ég hef 2 daga til að pakka og ekki veitir af, þyrfti helst svona viku í viðbót en þetta reddast :) Katrín mín ætlar að koma með mér suður og svo vill svo skemmtilega til að það er menningarnótt á laugardaginn svo það er nú líklegt að við slettum aðeins út klaufunum hehe
bið að heilsa í bili... Rakel
14. ágúst 2007 klukkan 19:47
Rakel Edda Bjarnadóttir 5 athugasemdir
það styttist og styttist í flutningana ...bara 3 vikur þangað til ég flyt! og smá breyting sem varð.. ég fékk íbúð á stúdentagörðunum! var alveg búin að útiloka það þar sem ég var alltaf númer 55 í röðinni og svo allt í einu fékk ég mail um að ég hefði fengið íbúð á 3 hæð í Eggertsgötunni sem er algjör snilld! ég var samt fyrst ekkert viss hvað ég átti að gera því mig langar líka að vera hjá Hirti og það er náttlega ódýrara fyrir mig en svo hef ég bara gott af því að gera þetta ein. líka geggjað að geta raðað og gert allt eins og ég vil og koma öllum fötunum mínum fyrir svo eru Pé og Bippi bara rétt hjá mér og Sigrún í skuggagörðunum svo það verður endalaust fjör og matarboð :) en ég var náttlega ekkert búin að gera ráð fyrir þessu svo nú á ég eftir að redda mér nokkrum húsgögnum þannig ef þið vitið um einhvern sem þarf að losna við sófa og sófaborð eða eldhúsborð og stóla þá megiði alveg láta mig vita :)
svo er ég að vinna í að koma öllum Hróaskeldumyndunum hérna inn og þetta er allt að koma, eru komnar um 170 myndir inn núna og slatti eftir. svo á ég líka eftir að setja nokkrar myndir frá Lunga síðan síðustu helgi sem var mjög góð helgi! lögðum af stað eftir vinnu á föstudeginum ég Linda og Katrín og vorum komnar til Seyðisfjaraðar um miðnætti og vorum ekki lengi að hella í okkur til að ná öllum hinum sem voru orðnir frekar ferskir! hehe svo á laugardeginum þá fórum við í sund á Egilstöðum og kíktum aðeins á fótboltaleik og engin þynnka í gangi sem betur fer!:) þegar við komum svo til Seyðisfjarðar aftur ákváðum við að leggja okkur aðeins í bílnum og héldum að við myndum nú ekki sofa lengi svona sitjandi í bíl eða að strákarnir myndu pottþétt koma og vekja okkur en það fór ekki alveg þannig svo við sváfum aðeins of lengi hehe en það var bara fínt því við vorum dúndur hressar um kvöldið og skipti engu svosem þótt við sáum ekki alla tónleikana. Náðum góðri íslenskri útilegu þessa helgina með góðu fólki og verður þetta vonandi endurtekið áður en sumarið er búið!
útilegustemmning :)
Þórgnýr Linda og Addi ágætis blanda hehe:)
svo megiði endilega kvitta :)
27. júlí 2007 klukkan 20:39
Rakel Edda Bjarnadóttir 6 athugasemdir
Við fórum semsagt aldrei aftur á internetið á Hróaskeldusvæðinu því einn morgunun vöknuðum við í polli og þurftum því að flýja til Köben. Það var munur að geta sofið á þurri dýnu með þak yfir höfuðið og geta þvegið fötin okkar sem voru öll orðin rennandiblaut! Svo fórum við bara alltaf með strætó og lestinni á milli Köben og Hróaskeldusvæðisins (einu sinni reyndar í taxa en bara einu sinni því hann var nærri búinn að drepa okkur á 190 kílometra hraða!). The Killers voru geðveikir og standa eigilega uppúr þótt reyndar Red Hot og Muse voru líka góðir. Við tókum 524 myndir svo ég held ég fari ekkert að skrifa neina ferðasögu hér inn, myndirnar segja allt sem segja þarf, set nokkrar inn hér og svo hinar þegar ég hef tíma :)
Næst á dagskrá er svo Lunga um helgina!:) Linda mín er að koma norður loksins á morgun hlakka svo til! Svo ætlum við að bruna austur eftir vinnu hjá mér og Katrínu á föstudaginn og vera yfir helgina. Pé og Bippi ætla líka og fullt af fólki svo þetta verður örugglega geggjað. Vonandi bara ekki alveg eins blautt og á Hróaskeldu :) Svo getur vel verið að ég skelli mér í aðra útilegu eitthvert aftur um versló fyrst ég er nú í fríi, á líka inni svo margar útilegur síðan síðasta sumar hehe eina sem ég og Katrín söknuðum í interrailinu voru allar íslensku útilegurnar, það er allt öðruvísi að vera í tjaldi í Amsterdam :)
Svo er bara sirka mánuður þangað til í flyt suður Lítur allt út fyrir að ég verði hjá stóra bróa sem verður án efa stuð! Endalaus partý og gaman er það ekki annars Hjörtur?;) Hlakka til að breyta til þótt það verði alltaf gott að koma heim í pabbamat :) og Katrín og Sunna þið verðið að vera duglegar að koma í heimsókn!
En best að fara laga aðeins til, gamla settið ákvað að skella sér í ferðalag svo ég og Addi erum ein heima aldrei þessu vant :) í endan smá sýnishorn af myndunum frá Hróa:
þarna erum við loksins komnar í Roskilde bæinn eftir að fluginu okkar seinkaði ..með fullt af dóti að sjálfsögðu :)
og komnar í drulluna :)
hittum líka þennan félaga
og ein kamarmynd eins og í fyrra....bara aðeins meiri drulla núna
ein edrú mynd líka
þessar hafa örugglega fengið pínu bömmer daginn eftir...
frekar blautt á Killers
Bjarni Bjartmar Geir og Katrín tóku eina veltu í pollinum :)
The Killers
hittum Björk bara einu sinni...böstuðum hana þá hehe:)
einhverjir vitleysingar að dansa uppá ruslatunnum
þarna eru við komnar úr drullunni til Köben á Hard Rock
og ein í lokin af okkur þremenningunum, takk fyrir frábæra ferð elskurnar :*
set svo fleiri myndir sem fyrst... adios
18. júlí 2007 klukkan 22:48
Rakel Edda Bjarnadóttir 3 athugasemdir
erum loksins komnar a Roskilde!! ferdin byrjadi vel...fluginu seinkadi um 12 klukkutima og vid turftum ad keyra til egilstadar og fljuga tadan til dk!! tannig eftir næstum solarhrings ferdalag komum vid loksins a svædid og tar toku sunna og thorgnyr og felagar a moti okkur og syndu okkur svædid okkar sem er a godum stad en samt pinu langt fra. Vid komum okkur "vel" fyrir i tjaldinu sem var ordid fullt af vatni og drullu og fundum svo ovart internet her (sem eg man ekki eftir ad hafi verid her i fyrra!!) og nuna ætlum vid ad reyna ad finna eitthvad annad ad borda en samlokur og halda svo afram med fjorid!!
kem med frettir seinna ef vid finnum tennan stad aftur hehe :)
03. júlí 2007 klukkan 17:36
Rakel Edda Bjarnadóttir 5 athugasemdir
Orðið frekar langt síðan síðast og margt búið að gerast! Veit ekki hvar ég á að byrja.... Við stelpurnar skelltum okkur suður eina helgi sem var algjör snilld! Margt athyglivert sem gerðist þar, sumt órithæft svo ég ætla ekkert að segja of mikið :) Fengum að vera í íbúðinni hennar Heiðrúnar á stúdentagörðunum sem var mjög fínt. Ég hitti loksins Lindu mína, við náðum aðeins að versla og kíktum út á lífið...ótrúlegt en satt:) Eiður Smári í hörku fíling á Sólon potaði Sunnu upp við vegg, varð svo geðveikt sorry og bauð okkur öllum frítt til Barcelona!
Sigrún, Linda og Jóna Ég og Águ mín
15.,16. og 17. júní var líka fjör! Gaman að hitta alla úr MA aftur 16. og núna bíð ég bara eftir 5 ára stúdentsafmælinu eftir 4 ár að hitta alla aftur. Sunna litla útskrifaðist svo 17. og ég var bara óvenju fersk í veislunni miðað við ástandið um kvöldið áður hehe. Fyrsta sem Sigrún sagði þegar ég mætti í veisluna "þú lítur bara mun betur út en ég var búin að búast við" :) En svo var ég reyndar alveg búin á því í Höllinni um kvöldið svo ég fór bara snemma heim að sofa og svo keppa daginn eftir engin orð um það hér....
Bryndís ég og Baldvin hress á 16.
góð mynd :)
Síðustu helgi fórum við fimmmenningarnir svo í útilegu. Byrjuðum á því að fara í Ásbyrgi en vildum ekki tjalda á milli fellihýsanna þar og fjölskyldufólksins því við erum alltaf með svo mikil dólgslæti þannig við keyrðum aðeins lengra og tjölduðum í Lundi. Komum okkur vel fyrir og grilluðum, töluðum, spiluðum, drukkum og hlógum. Sumir drukku samt meira en aðrir Svo þegar við vöknuðum um morguninn var ömurlega leiðilegt veður. Rigning og rok svo við ákváðum að pakka saman og fara eitthvað annað. Loka ákvörðum var Jónsmessunótt á Mývatni með smá stoppi hjá Dettifossi. Pökkuðum öllu aftur úr bílnum og tjölduðum uppá nýtt og röðuðum. Skemmtum okkur konunglega þetta kvöld og ekki skemmdi að á sunnudeginum var frábært veður. Takk fyrir geggjaða helgi elskurnar :*
Í kremju afturí svo allt dótið komist fyrir :)
vonda veðrið á laugardeginum
stelpurnar hjá Dettifoss
En á milli öllum þessum skemmtunum er svo náttlega vinna og æfingar og hversdagsleikinn en ég skemmti mér samt líka þar svo þetta rennur allt í eitt. Eintóm hamingja hehe Útilegan var líka góð upphitun fyrir Roskilde!! Brottför eftir 5 daga! Vá hvað ég hlakka til! Allt að verða klárt, keyptum tjaldið áðan sem á eftir að rúma okkur 5 vel held ég og kannski rúmlega það ;) Lýst vel á dagskrána og margt sem mig langar að sjá og ekkert svo margar hljómsveitir sem stangast á sem mig langar að sjá sem er gott. En held að þetta sé fínt í bili og enda á stjörnuspánni minni sem ég las í blaðinu í dag: "Þú ert ævintýragjörn og það er ástæða fyrir því. Þú hélst að þetta myndi aldrei ganga svona langt en nú sérðu að draumar þínir gætu ræst." ??
26. júní 2007 klukkan 19:49
Rakel Edda Bjarnadóttir 2 athugasemdir
01júní
ég setti inn myndir frá staffadjammi á kaffiAk og líka nokkrar síðan um síðustu helgi, þetta kemur hægt og rólega :) er komin inn í HÍ svo stefnan er sett suður í haust þótt það sé nú reyndar ýmislegt annað líka sem mig langar að gera....
í höllinni á Reyðarfirði, leikurinn á móti Leikni F
og ein hér af okkur fimm :)
en jæja er farin að pússa dansskóna og klára að pakka adios
01. júní 2007 klukkan 00:14
Rakel Edda Bjarnadóttir 7 athugasemdir
Ég er nú alveg að standa mig hér í blogginu...hhmmmm Fórum austur að keppa um helgina. Ég rétt komst með eftir mikið bras að redda mér fríi í Sportver og á Kaffinu en ég vinn með svo góðu fólki að það reddaðist. Lögðum af stað á laugardagsmorgun og ég var frekar þreytt eftir þrettán tíma vinnu á föstudeginu svo ég vaknaði aðeins of seint og var næstum búin að gleyma dýnu og sæng en rétt mundi og greip með mér þunna tjalddýnu og svefnpoka. Keyrðum svo beint til Reyðarfjarðar (reyndar með smá stoppi í ríkinu á Egilstöðum :) ) leikurinn fór svo Hamrarnir 6 - 1 Leiknir F , góður sigur þar :) svo lá leiðin til hafnar þar sem við gistum hjá pabba Jónu og ég með þunnu tjalddýnuna og svefnpokann endaði að sofa með sæng í hjónarúminu með Kötu og Erlu :) Seinni leikurinn fór svo Hamrarnir 2 - 0 Sindri sem þýðir að við komum heim með 6 stig ;) (þótt seinni leikurinn hafi reyndar verið einn sá leiðilegasti!) en takk fyrir góða ferð stelpur!
Ég Katrín Katrín Sigrún og Sunna ætlum svo að skella okkur suður næstu helgi. bruna bara beint eftir vinnu á föstudeginu og hitta Lindu mína og kannski fleiri....;) og kannski versla smá...gæti verið hehe
Svo styttist óðum í Hróaskeldu!! Fullt af hljómsveitum sem mig langar að sjá þar eins og t.d. The Killers, Mika, muse, peter bjorn and john, Red hot chili peppers og svo má ekki gleyma Beastie boys sem ég fer kannski á hehe Katrín og Arnar voru einmitt að setja upp partýtjaldið í stofunni og það virkar fínt sýnist mér, rétt kemst fyrir í stofunni svo það ættu alveg að komast slatta af fólki þarna undir:)
En best að fara taka úr þvottvélinni og setja í aðra og vökva blómin sem eru enn á lífi ótrúlegt en satt Bæ í bili
Rakel
29. maí 2007 klukkan 22:34
Rakel Edda Bjarnadóttir 1 athugasemd
góð vika að enda, fínt að vera í fríi á fimmtudeginum. væri ekkert slæmt ef það væri alltaf frí einn virkan dag í viku...það myndi stytta vikuna alveg helling:) gamla settið er svo að fara stinga af til spánar. væri ekkert á móti því að vera fara með í 25 stiga hita og liggja á ströndinni! en einhver verður að vera heima og passa blómin og adda litla. katrín ætla líka að nota eldhúsið undir tilraunastarfsemi svo hún geti bætt við fleiri réttum í matarbókina sína og ég verð svo heppin að fá að smakka :)
var að fá eitthvað nýtt astmalyf sem ég þarf að taka alltaf á morgnana og kvöldin. ein aukaverkunin af þeim er að maður skelfur dáldið rétt eftir að hafa tekið púst. svo í morgun þegar ég fór í vinnunna var ég aðeins að prófa eitt hjól (brjálað að gera í vinnunni!) og nýbúin að taka púst svo ég skalf frekar og mæli ekki með því að fara skjálfandi að hjóla því ég klessti á gýnuna og næstum eina konu! en "keypti" mér einmitt hjól í dag. geggjað schwinn hjól mjög ánægð með það svo ef einhver vill koma í hjóltúr þá bara bjalla í mig :) fékk mér líka buxur og svo voru að koma nýjar cintamani peysur geggjað flottar og það fer að koma nýtt í nike. en ég verð nú að fara hemja mig held ég, kannski ekki skrítið að það er langt síðan ég hætti að koma fötunum mínum í fataskápinn!
setti inn myndir frá svíþjóð ferðinni okkar ágústu í febrúar. það tók nú sinn tíma, þetta er frekar slow þetta myndadæmi en þetta hafðist á endanum
hér er ég einmitt nýbúin að lenda flugvélinni í Stockholm:)
Góða helgi. Rakel
18. maí 2007 klukkan 20:22
Rakel Edda Bjarnadóttir 6 athugasemdir
ákvað að gera nýtt blogg...kemur svo í ljós hvað ég verð virk að skrifa hér inn:) ætla líka að fara setja inn fullt af myndum. á ennþá eftir að sýna ykkur myndir frá síðasta sumri sem eru nokkur þúsund stykki!
annars er allt gott að frétta, nóg að gera í vinnunni og síðasta helgi var ansi strembin þar sem ég svaf 3 tíma á tæpum tveim sólarhringum! var að vinna á föstudaginn í sportver til hálf sjö eins og alltaf, fór svo að vinna á kaffinu klukkan ellefu til hálf sex, svo aftur í sportver tíu til fimm á laugardaginn og svo afmæli til sunnu og trausta klukkan sjö og veit ekki á hverju ég gekk en entist alla nóttina! og skemmti mér konunglega;) horfðum með öðru auganu á eurovison og mér fannst sigurlagið mjög flott! fórum svo aðeins í parý þar sem ég hitt frænda minn frá uppsölum! kíktum á kea þar sem ég átti athyglivert spjall við einn sjálfstæðismann! aðeins á kaffið og svo sjallann og ég og björk vorum svo hressar saman á sunnudaginn hehe
fór á fótboltaæfingu áðan. rifja upp gamla takta:) geðveikt gaman en ég er gjörsamlega búin á því núna! býst allavega við því að fá strengi á morgun.
svo er nóg að hlakka til...16.júní sem verður án efa snilld! hitta alla aftur vá hvað mig hlakkar til. svo helgina eftir það erum við stelpurnar að fara í útilegu og svo náttlega hróaskelda í byrjun júlí!
er lika farin að hlakka til að fara suður í haust. ætla að skella mér í hí. fínt að breyta til og fá skúffuköku og mjólk í kvöldmat hjá bróa hehe
ætli þetta sé ekki orðið fínt í bili og set inn einhverjar myndir á eftir ef ég hef orku;) endilega svo kvitta líka:)
Rakel Edda
14. maí 2007 klukkan 22:03
Rakel Edda Bjarnadóttir 8 athugasemdir